Björgunarsveitin Garðar

10.05.2012 11:39

Stóræfing þann 9 Júní

Mynd af síðusu  almarnaræfingu í Laxárvirkjun

Laugardaginn 9. júní næstkoandi verður haldin almannavarnaæfing á Skjálfanda.  Ábyrgð á þessari æfingu er á höndum almannavarnanefndar Þingeyinga í samvinnu við Ríkislögreglustjóra-almannavarnadeild,  Lögreglustjórann á Húsavík, Landhelgisgæslu og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.  Æft verður sjóslys utan við Húsavíkurhöfn og munu hvalaskoðunarskip spila lykilhlutverk á vettvangi.  Söfnunarsvæði slasaðra verður sett upp í húsnæði björgunarsveitarinnar á Húsavík og fjöldahjálparstöð verður opnuð í íþróttahöllinni.   Aðgerðastjórn umdæmisins verður virkjuð,  svo og Samhæfingarstöðin í Reykjavík. 

Markmið þessarar æfingar er að skoða áfallaþol umdæmisins,  skoða getu viðbragðsaðila hvað varðar mannafla, búnað og þekkingu og láta reyna á stjórnunarþátt  aðgerðarinnar.   Þá verður farið sérstaklega yfir flæði þolenda frá vettvangi.     

Þyrla Landhelgisgæslunnar verður á staðnum.


Formaður Björgunarsveitarinar Garðar hvetur alla meðlimi sveitarinar Garðars að taka þátt í þessari æfingu bæði nýliðar sem og eldri menn og konur. skráning fer fram hér að neðan fyrir föstudaginn 25. maí n.k.



Með góðum kveðjum,

Friðrik Jónsson, almannavarnanefnd Þingeyinga

28.04.2012 11:18

Rusladagurinn '12

Norðurþing hefur boðað til rusladags Laugardaginn 5 mai  næstkomandi,Björgunarsveitin hefur fengið útlutað svæði,   svæðið okkar mun verða það sama og í fyrra sem afmarkast af Lyngbrekku að laugardal, (hæðin þar sem ostakarið er ) skorar  stjórnin á alla meðlimi okkar til að taka virkan þátt í þessu verkefni og endilega takið alla fjöldskylduna með og gérum skemtilegan dag úr þessu verkefni, mæting er í Hús kl 10.00  takk fyrir . Formaðurinn

 

12.04.2012 11:06

Orkugangan 2012

Orkugangan þann 14 Apríl

Orkugangan er næsta laugardag og er búið að biðja Björgunarsveitina að vinna við hana eins og undanfarin ár, orkugangan verður með öðru sniði í ár þar sem frekar snjólétt er upp á heiði  verðu gengið í hringi upp við Meyjarskarð.  þufum við að manna tvær drykkjarstöðvar á samt að vera með sleðana og búnað til taks,  tímasetning er frá kl 10.00 - 17.00.  þeir sem hafa áhuga á að vinna við þetta skrá sig hér að neðan  4-6 manns þurfa í þetta verkefni ,Formaður

27.01.2012 16:01

Útkall F-3

útkall á bílaflokk

 

Aðstoðarbeiðni barst til okkar um kl  13.50 frá Neyðarlínuna þar sem maður hringdi inn og sagðis hafa fest bíl sinn við húsavíkurfjall, sennilega situr hann ofaná gróti, við brugðumst við þessu verkefnu og sendum einn bíl í þetta verkefni. Frekar erfitt var að nálgast bílinn vegna færðar. Var verkefnið leist með því að tjakka bílinn upp af grjótinu og hann dregin svo langleiðina til byggða. Smá tjón varð á bílnum við þessa festu en hann náði að aka honum á verkstæði þar sem hanns bíður  væntanlega sleggjuhögg og  suðuvinna. Því útskeifur var hann.   


 

 

27.01.2012 10:15

útkall F-3 Bílaflokkur

Útkall barst á bílaflokk um kl 01.25   í nótt en maður sem hringdi í 112 og óskaði efti aðstoð að draga bíl sinn upp þar sem hann sat farstur í Reykjarhvefinu um 30 km frá Laxamýr. Farið var á 2 bílum í verkefnið. Var svo búið að draga bílinn upp á veg aftur kl 02.10 . útkalli lauk svo kl 02.45

26.01.2012 01:20

útkall F-3. Sleðaflokkur

Sleðaflokkur okkar var ræstur út kl 21.50 til að leita af rafmagnsbilun á reykjaheiði, en rafmagnslaust var á Tjörnesi að kópaskeri, Talið er að linan hafi slitna á leið frá Laxárvirkjun að Kópaskeri. Okkar verkefni var að kanna línuna frá Árnahvammi að fjöllum. Fljótlega eftir að okkar flokkur hóf leit á sínu svæði komu þeir auga á bilunina og voru Rarikmenn latnir vita af því og allir flokkar því kallaðir heim .  sleðaflokkar frá Aðaldal og Kópaskeri voru einnig að kanna línurnar á sínu svæði. Útkallinu lauk um 01,00

 

11.01.2012 14:29

Fjallamennska 1 (Námskeið helgina 14-15 jan )

 við byrjum kl. 9 á laugard. og sunnud. ég er að vinna dagskrána

hér er hnútasíða með flestum hnútum sem eru notaðir í fjallamensku:
http://www.animatedknots.com/indexclimbing.php

Hér eru svo linkar beint á þá hnúta sem við ætlum að læra. Takið samt eftir að það eru til margar mismunandi aðferðir við að binda sömu hnútana. Það þarf ekki endilega að kunna þessar aðferðir.

Þræddur áttuhnútur - http://www.animatedknots.com/fig8follow/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Pelastikk - http://www.animatedknots.com/bowline/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Fiskimannahnútur - http://www.animatedknots.com/doublefishermans/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Fiðrildahnútur - http://www.animatedknots.com/alpinebutterfly/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Hestahnútur - http://www.animatedknots.com/fig8follow/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Sling- eða borðahnútur - http://www.animatedknots.com/waterknot/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Hálfragð/ítalskt bragð - http://www.animatedknots.com/muntermule/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Prússikhnútur - http://www.animatedknots.com/prusik/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com
Franskur prússik - http://www.animatedknots.com/klemheist/index.php?Categ=climbing&LogoImage=LogoGrog.jpg&Website=www.animatedknots.com

Hér er svo smá varðandi þann útbúnað sem þarf. Það þarf samt ekki eina klifurlínu á mann gott væri að hafa eina á hverja tvo.

Nánari lýsing: Bókinn Fjallamennska

Skjávarpi og tafla

Kennslugögn og annar sérbúnaður til fjallamennsku
Kröfur og búnaður þátttakenda: Þáttakendur þurfa að vera í góðum skóm, vind- og vatnsheldur fatnaður nauðsyn. Mannbrodda, klifurbelti, karabínur, tryggingartól, prussik,hjálm, ísöxi, klifurlína Snjóflóðaýli, snjóflóðastöng og skóflu.
Helstu námskeiðsþættir: Búnaður til fjallamennsku, leiðarval og snjóflóðahætta, gengið í snjó, notkun ísaxar og ísaxarbremsa. Gengið á mannbroddum, snjó ístryggingar og bergtryggingar, línumeðferð í klifri og við sig, ferli klifurs



kv.
--
Jón Heiðar Rúnarsson
 8922147


20.11.2011 20:21

Afmælisferð Björgunarsveitarinnar.

Fórum í skemmtilega ferð upp í Mývatnssveit, gengum hringinn um Leirhnjúk og skoðuðum vítið, sigum svo ofan í Vogagjá og böðuðum okkur þar. Góð þátttaka var frá unglingum og gaman að vera með þeim.

10.11.2011 23:06

Frétt

Björgunarsveitin Garðar hefur verið boðuð til leitar um helgina að erlendu ferðamanni sem saknað er á Sólheimajökkli og er áættlað brottför um kl 16.00 á morgun 11.11.  en sveitir hafa verið kallaðar til nær allstaðar að af landinu, sex menn og einn Hundur  frá Garðari fara til leitar á samt fólki frá fleiri sveitum af svæði 12.  

10.11.2011 22:55

Á slökkvistöðinni.

  
 
Krakkarnir í Náttfara fóru að skoða slökkvistöðina í kvöld og fengu að prófa reykköfunartækin og sprauta úr slöngunum þeirra. Þau stóðu sig mjög vel og sýndu mikinn áhuga.

09.11.2011 21:05

Klár á sjó.



Náttfarar fóru í æfingaferð á Jóni Kjartans í kvöld og lærðu hvernig maður hegðar sér í og við björgunarbát.

27.10.2011 21:19

Dagskrá nóvembermánaðar

3.         Fundur kl.20:30.  úthlutun svæðis og tíma fyrir sölu á neyðarkalli.

4-5.      Sala á neyðarkalli.

10.       Fundur kl.20:30.  Sjór (eldri), Slökkvistöðin (yngri).

11-13.  Fyrsta hjálp I (eldri),
13.       Sjór (yngri).

17.       Afmæli Björgunarsveitarinnar Garðars.

20.       Afmælisferð - mæting kl.11:00 með útiklæðnað og nesti.

24.       Fundur: kynning á ungmennaskiptum við þjóðverja.


            Fjallamennska 1 - Staðnám, haldið í Nausti ????
                                               Sem var frestað um óákveðinn tíma í október.


                                                                 Hlakka til að sjá ykkur!

12.10.2011 20:05

Dagskrá Októbermánaðar.

Október

2.         Fjallaferð - útiklæðnaður og nesti í bakpoka

6.         Fundur hjá Náttfara

8-9.      Ratleikur - fjallganga 
            - áttaviti og útivera
            - eldri gista úti        
Frestað vegna veðurs!

13.       Fundur hjá Náttfara, haldinn í st.15 í Borgarhólsskóla

16.       Fjarskipti - Fjarnám í sal með glærur á tjaldi. Mæting kl.14:00 í Nausti.

20-23. Haustfrí

27.      Fundur hjá Náttfara.

28.-30. Fjallamennska 1 - Staðnám, haldið í Nausti 
                                               Frestað um óákveðinn tíma vegnar snjóleysis!


                            Hlakka til að sjá sem flesta!

02.10.2011 21:33

Fjallaferð Náttfara


 Félagar í unglingadeildinni Náttfara fóru í fjallaferð upp á Þeistareyki og skemmtu sér konunglega. Við fylltum báða bílana og munaði engu að það þyrfti að skilja Sigrúnu eftir heima, þökk sé þeirri sem ekki mætti.
Þau skoðuðu nokkra hella og sumir prófuðu að klifra í klettum. Við notuðum áttavita til að rata og síðan settum við upp leitarlínu til að finna tiltekinn helli, en því miður fundum við hann ekki í þetta skipi, tekst betur næst :) 
Myndir í albúminu.

29.09.2011 09:44

Landsæfing. 2011

Landsæfing LAND 08.10.2011

Æfingin verður haldin á Vestfjörðum í umsjón sveita á svæði 7. Gert er ráð fyrir því að verkefni byrji um kl 8 á laugardegium. Áætlað er að æfingunni ljúki svo með sundi og grilli um kl 18

Þegar hópar koma á svæðið verður þeim afhent verkefnamappa. Þar verður lýsing á öllum verkefnum með staðsetningu ofl. Boðið verður upp á gistingu en hópar þurfa að koma með dínur.

Skráning er á innrasvæði félagsmanna eða hjá Sigrúnu í síma 8662926

Allir hópar munu fá almenn verkefni en svo verður sérhæfðum verkefnum úthlutað til þeirra sem þess óska.

Þar sem flest allir þátttakendur þurfa um langann veg að fara er eindregið mælt með því hópar gisti og séu alls ekki að keyra langar leiðir lítið sem ekkert hvíldir.

Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 69
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 140935
Samtals gestir: 37007
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:50:04

Björgunarsveitin Garðar

Nafn:

Björgunarsveitin Garðar

Farsími:

112

Afmælisdagur:

17 Okt. 1959

Heimilisfang:

Nausti | Hafnarsvæðinu

Staðsetning:

Húsavík

Heimasími:

464 1650

Um:

Björgunarsveitin Garðar Húsavík

Kennitala:

6002810469

Bankanúmer:

567-26-11042
clockhere

Tenglar