|
Björgunarsveitin Garðar |
|
Flokkur: Fréttir02.10.2011 21:33Fjallaferð Náttfara![]() Félagar í unglingadeildinni Náttfara fóru í fjallaferð upp á Þeistareyki og skemmtu sér konunglega. Við fylltum báða bílana og munaði engu að það þyrfti að skilja Sigrúnu eftir heima, þökk sé þeirri sem ekki mætti. Þau skoðuðu nokkra hella og sumir prófuðu að klifra í klettum. Við notuðum áttavita til að rata og síðan settum við upp leitarlínu til að finna tiltekinn helli, en því miður fundum við hann ekki í þetta skipi, tekst betur næst :) Myndir í albúminu. Skrifað af Sigrún Þórólfs 20.02.2008 12:10Gefandi að þjálfa björgunarhunda.tekið af WWW.640.is þriðjudagur 19.febrúar 2008 - Hafþór Hreiðarsson -
Guðbergur og Sigrún með Nóa og Perlu við æfingar. Fólk kom víða að af landinu, en þau Sigrún og Guðbergur fengu sérstaka hjálp frá unglinum úr Hjálparsveitinni í Garðabæ. Að auki hafa þau fasta ?fígúranta? en svo nefnast þeir sem leika hina týndu og láta grafa sig í fönn. Sigrún segir þetta fólk, sem oftar en ekki eru krakkar, veita ómetanleg hjálp við þjálfun hundanna. Með þeim Sigrúnu og Guðbergi var einn slíkur, Kristinn Björgvinsson sonur Sigrúnar. Að sögn Sigrúnar var æft Ólafsvíkurmegin, farið upp Jökulhálsinn og keyrt eins langt upp og þurfti til að finna nægan snjó til að æfa í. Færið var þokkalegt, en frekar blautt enda rigndi á þau allan tímann. Æfingarnar gengu samt vel og stóðu bæði hundar og menn sig með mestu prýði. ,,Þeir fyrstu mættu á fimmtudagskvöldið og æfðu á föstudaginn. Flestir mættu þó á föstudaginn, þar á meðal við, og æfðum á laugardag og sunnudag. Farið var á svæðið kl.9 á morgnana og æft fram í myrkur en á sunnudaginn var hætt fyrr svo fólk gæti haft sig heim fyrir nóttina . Hundarnir voru á öllum stigum þjálfunar, allt frá hundum sem eru að stíga sín fyrstu spor í þjálfuninni eins og okkar hundar og upp í gamalreynda A-hunda jaxla? sagði Sigrún. En hvert skyldi vera markmiðið með þjálfun hunda til björgunarstarfa ? ,,Aðal tilgangur Björgunarhundasveitar Íslands er að þjálfa hunda til leitarstarfa. Að hundur og maður geti starfað sem teymi, þekki og skilji hvorn annan þannig að leitarmaðurinn geti stjórnað hundinum í leit og séð hvenær hundurinn hefur fundið það sem leitað er að? segir Sigrún og bætir við að það sé mikil vinna að þjálfa björgunarhund. Tvö ár er lágmarkstími til að þjálfa hund svo hann geti talist öruggur sem björgunartæki, eftir það þarf stöðugt að halda þjálfun hans við. Hundar þurfa að fara í próf og eru þær reglur um mat á hundum og mönnum sem notast er við að mestu komnar frá Noregi og Bretlandi en hafa verið staðfærðar að aðstæðum hér á landi. Samkvæmt þessum reglum er leitarhundum á Íslandi skipt í þrjá flokka: C, B og A í snjóflóðaleit og í víðavangsleit. Að sögn Sigrúnar eru 25-30 manns með hunda sem æfa að staðaldri hjá sveitinni og eru æfingar yfirleitt haldnar vikulega víðs vegar um landið, á Húsavík er æft á sunnudögum. Síðan eru svokallaðar æfingahelgar þar sem reynt er að hittast með hundana, æfa saman og bera saman bækur okkar. Þá heldur sveitin einnig námskeið reglulega til úttektar á hundunum, eitt 5 daga vetrarnámskeið og fjögur helgarnámskeið á sumrin. En hversu mikilvægt er það fyrir björgunarsveitir að hafa björgunarhunda innan sinna raða? ,,Að fenginni reynslu er það álit manna sem starfa að þessum málum að það þurfi að vera hundar á þeim stöðum þar sem er snjóflóðahætta. Því eins og við vitum er nauðsynlegt að koma hundum á slysstað eins fljótt og auðið er. Þessir hundar hafa bjargað mörgum mannslífum þar sem fallið hafa snjóflóð. Leitarhundar hafa einnig nýst vel við víðavangsleit og að rekja spor og því er það mikilvægt fyrir allar björgunarsveitir að hafa aðgang að vel þjálfuðum björgunarhundi. En það fer gríðarlegur tími í þetta og því þarf frumkvæðið ætíð að koma frá einstaklingnum sjálfum svo hann sé tilbúinn að leggja út í svo mikla vinnu sem hundaþjálfun er?? segir Sigrún.. En er það ekki gefandi að vinna með hunda eins og Perlu og Nóa ? ,, Jú hundaþjálfunin er mikil vinna eins og áður hefur komið fram en afskaplega gefandi. Hundaþjálfunin byggir á leik og gleði svo mikill tími fer í að leika sér við hundinn, láta hann sækja og skila, finna týnda hluti, fara í göngutúra, fjallaferðir eða út að hlaupa. Síðan breytist þetta í vinnu þar sem æfingarnar snúast um að leita að fólki, ýmist úti á víðavangi eða grafið í snjó. Það er alltaf góð tilfinning sem fylgir því að hjálpa öðrum, það að vera til taks þegar á þarf að halda og hjálpa fólki í neyð er eitthvað sem gefur manni þann styrk sem þarf til að vera í björgunarsveit. Það að vera í björgunarhundasveit er enn meira gefandi, við ferðumst um landið og eignumst marga góða vini, bæði menn og hunda? sagði Sigrún að lokum. 18.02.2008 21:14Tækjakaup
Björgunarsveitin fékk til sýn tvo nýja sleða fyrr í þessum mánuði af gerðinni Polaris Dragon 800 en fyrir átti sveitin ski doo mxz renegade 2004 og ski doo summet 800 2004 en þeir eru til sölu á góðu verði, Polaris sleðarnir komu full græjaðir til okkar frá umboðinu en þeim var breitt þar í samræðum við kröfur sleðamanna. Þótt lítill sé snjórinn nú á dögum gafst þeim sleðamönnum tækifæra á að reyna sleðana og var ekki annað að heyra á þeim að þetta væri þokkalegar græjur. 14.02.2008 00:15Ný og virkari heimasíða Björgunarsveitarinnar GarðarsJæja við höfum ákveðið að byrja með nýja og mun virkari heimasíðu Björgunarsveitarinnar Garðars svo að meðlimir og aðrir geti fylgst með því sem að er að gerast og því sem að fram undan. Við verðum 3 sem að verðum mest að sjá um þessa síðu þannig að þið hafið bara samband við okkur ef að það er eitthvað sem að þið viljið að komist til skila. Guðbergur Rafn s:8611351 | spreki@egj.is | http://www.123.is/spreki/ Friðrik Þór s:898-2816 Atli Björgvinsson s:8698635 | oreomaster@gmail.com | Skrifað af Atli Björgvinsson
Flettingar í dag: 60 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 69 Gestir í gær: 16 Samtals flettingar: 140935 Samtals gestir: 37007 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:50:04 |
Björgunarsveitin Garðar Nafn: Björgunarsveitin GarðarFarsími: 112Tölvupóstfang: bsvgardar@simnet.isAfmælisdagur: 17 Okt. 1959Heimilisfang: Nausti | HafnarsvæðinuStaðsetning: HúsavíkHeimasími: 464 1650Um: Björgunarsveitin Garðar HúsavíkBankanúmer: 567-26-11042clockhere Eldra efni
Tenglar
|